Innskráning fyrir félög að Mínum síðum

Til að fá aðgang að Mínum síðum fyrir hönd félags þarf viðkomandi að vera skráður prókúruhafi félagsins hjá Fyrirtækjaskrá. Bankaprókúra jafngildir ekki slíkri skráningu og veitir því ekki aðgang. Jafnframt þarf að tengja rafræn skilríki við prókúru félagsins í gegnum Signet vefinn svo unnt sé að staðfesta innskráningu.

Skref 1 – Kannaðu skráningu félags í Fyrirtækjaskrá

  • Til að geta skráð þig inn á Mínar síður þarftu að vera með skráða prókúru fyrir félagið samkvæmt upplýsingum í Fyrirtækjaskrá.
  • Þú getur staðfest þetta með því að fara inn á vef Fyrirtækjaskrár og leita að félaginu.
  • Þar geturðu sótt staðfest vottorð, þar sem fram kemur hverjir eru skráðir prókúruhafar félagsins.

Skref 2 – Staðfesta tengsl við félag

  • Næsta skref er að tengja rafræn skilríki við aðganginn þinn að Mínum síðum.
  • Farðu inn á Signet-vefinn og skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.
  • Að innskráningu lokinni birtast leiðbeiningar á skjánum. Veldu Áfram til að halda áfram.
  • Sláðu síðan inn númerið eða orðið sem birtist í símanum þínum í reitinn fyrir auðkennisnúmer á vefnum.
  • Þegar auðkenning hefur verið staðfest ættu rafrænu skilríkin þín að vera tengd við aðganginn.

Skref 3 – Skrá umboð til að tengja aðgang við rafræn skilríki

  • Undir flipanum „Veita umboð“ þarf að fylla út eftirfarandi upplýsingar:
    • Nafn félags
    • Umboðshafi – kennitala þess sem á að fá aðgang
    • Fyrir hönd – þessi reitur fyllist sjálfkrafa út af kerfinu
    • Gildir til – veldu gildistíma umboðsins
  • Þegar upplýsingarnar hafa verið skráðar skaltu vista umboðið. Að því loknu birtist staðfesting á að umboðið hafi verið skráð.